36 milljarða reikningurinn

Það er erfitt að finna skatt sem ríkisstjórnin vill ekki hækka eða gjald sem ekki á að skrúfa upp um næstu áramót.

Tekjuskattur einstaklinga hækkar með óbeinum hætti. Bankaskatturinn hækkar um 75%. Kílómetragjaldið um nær 16%. Virðisaukaskattur á baðlón og gufuböð fer úr 11% í 24%. Skattlagning á vinnu við byggingu og endurbætur íbúðarhúsnæðis eykst með lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts. Áfengis-, tóbaks-, nikótín- og kolefnisgjöld hækka. Bifreiðagjald hækkar. Gistináttaskattur hækkar. Útvarpsgjald hækkar. Nýtt milljarðagjald verður lagt á ferðamenn. Úrvinnslugjöld hækka í sumum tilvikum um tugi eða hundruð prósenta.

Samhliða eru vaxtabætur afnumdar og barnabætur frystar þriðja árið í röð.

Þetta er rauði þráðurinn í tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2027: Auknar álögur á heimili og fyrirtæki.

Samkvæmt tölum fjármála- og efnahagsráðuneytisins eiga skatt- og tekjuráðstafanir að færa ríkissjóði 34,1 milljarð króna til viðbótar á næsta ári. Þegar við bætist 800 milljóna króna tekjutap heimila vegna afnáms vaxtabóta og um 1,1 milljarðs raunskerðing barnabóta er mælanleg aukin byrði komin í um 36 milljarða króna.

Og þá er ekki allt talið enda ótalin neikvæð áhrif bankaskatts á vexti og þjónustugjöld, áhrif skattahækkana á verðtryggðar skuldir eða sú raunskerðing barnabóta sem þegar varð frá 2025 til 2026.

Verðtryggt skattkerfi

Eitt athyglisverðasta einkenni fjárlagafrumvarpsins er sú hugmyndafræði að tekjur ríkisins skuli verja sérstaklega fyrir verðbólgunni. Stjórnvöld ætla almennt að hækka krónutöluskatta og gjöld um 5,2%.

Röksemdin er sett fram með sakleysislegu orðalagi. Þetta er kallað „verðlagsuppfærsla“. Í greinargerð fylgifrumvarpsins er tilgangurinn sagður sá að gjöldin „haldi verðgildi sínu“.

En skattur getur aldrei haft sjálfstætt verðgildi sem skattgreiðanda ber skylda til að tryggja ríkissjóði.

Ríkissjóður fær 6,5 milljörðum króna meira vegna verðtryggingar krónutöluskatta og gjalda.

Þetta er ekki smávægileg bókhaldsleiðrétting. Þetta eru 6.500 milljónir króna sem einstaklingar og fyrirtæki greiða ríkinu umfram það sem þau hefðu greitt ef krónuskattar hefðu verið óbreyttir, tölurnar hefðu staðið óbreyttar.

Frávikin frá 5,2% stafa að mestu af námundun krónutalna. Fylgifrumvarpið staðfestir meðal annars að útvarpsgjaldið fer úr 22.200 í 23.400 krónur og gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra úr 14.614 í 15.374 krónur. Gistináttaskatturinn fer úr 800 í 840 krónur og innviðagjaldið úr 1.600 í 1.680 krónur.

Kílómetragjaldið sker sig síðan úr. Þar er ekki látið nægja að verðtryggja gjaldið heldur er bætt við sérstakri hækkun þannig að gjaldið á venjulegan fólksbíl fer úr 6,95 í 8,05 krónur á kílómetra — tæplega 16% hækkun.

Á sama tíma og ríkisstjórnin leggur áherslu á að „verðtryggja“ skatttekjur ríkisins eru greiðslur til barnafjölskyldna frystar. Barnabætur voru um 21 milljarður króna árið 2025. Fjárhæðin er sú sama á þessu ári og verður óbreytt á komandi ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu eða 21 milljarður. Ef barnabætur væru hækkaðar með sama hætti og krónutöluskattar yrðu barnabæturnar rúmir 22,1 milljarður króna árið 2027. Raunskerðingin frá 2026 nemur því um 1,1 milljarði króna miðað við verðlagsforsendur ríkisstjórnarinnar.

Pólitísk forgangsröðun ríkisstjórnarinnar birtist með skýrum hætti:

Ríkið verðtryggir skattana sína en ekki barnabætur fjölskyldnanna. Og á sama tíma verða vaxtabætur felldar niður.

Skattahækkun án hærra skatthlutfalls

Ein „snjallasta“ skattahækkun fjárlagafrumvarpsins er falin í tekjuskatti einstaklinga. Skatthlutfallið hækkar ekki. Þess í stað hefur reglan um hækkun persónuafsláttar og fjárhæðamarka skattþrepa verið sett til hliðar.

Frá árinu 2022 hefur hækkunin miðast við verðlag að viðbættu 1% framleiðniviðmiði. Þannig var komið í veg fyrir að skattbyrði hækkaði sjálfkrafa vegna nafnlaunahækkana. En ríkisstjórnin hefur ákveðið að framleiðniviðmiðið verði 0% árið 2027.

Persónuafsláttur og skattþrep hækka því minna en samkvæmt óbreyttu kerfi og ríkissjóður fær 3,1 milljarði króna meira í tekjuskatt einstaklinga. Sem sagt: Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hækka tekjuskatt einstaklinga – þyngja skattbyrði launafólks.

Kílómetragjaldið hækkar um nær 16%

Kílómetragjald á venjulegan fólksbíl hækkar úr 6,95 í 8,05 krónur á kílómetra eða 15,8%.

Hluti hækkunarinnar er 5,2% verðtryggingin en ofan á hana kemur sérstök hækkun sem á að afla ríkissjóði fjögurra milljarða króna.

Fyrir bíleigandann er niðurstaðan einföld, gjaldið hækkar um tæp 16%.

Bankaskatturinn hækkar um 75%

Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki fer úr 0,145% í 0,254% sem er 75,2% hækkun og ríkissjóður fær sex milljörðum króna meira í kassann og að bankaskatturinn skili alls 13,9 milljörðum árið 2027.

Pólitískt er þægilegt að leggja skatt á banka og tala eins og reikningurinn fyrir þyngri sköttum verði greiddur af bönkunum sjálfum. Þá er gengið út frá því að bankarnir sætti sig við enn lægri arðsemi eigin fjár sem er þegar slök í alþjóðlegum samanburði. Enn lægri arðsemi dregur úr áhuga fjárfesta og hefur áhrif á áhættuálag bankanna og kjör þeirra við fjármögnun á markaði. Dýrari fjármögnun þrengir síðan svigrúm bankanna til að bjóða viðskiptavinum hagstæð lánskjör.

Það er síðan sérstakt áhyggjuefni að stjórnarliðar sem segjast ekki þjást af „skattahræðslu“ virðast í engu skilja samhengi skatta og samkeppnishæfni atvinnulífsins gagnvart öðrum löndum. Íslenskir bankar keppa ekki eingöngu sín á milli. Stærri íslensk fyrirtæki eiga mörg viðskipti við erlenda banka eða hafa aðgang að erlendri lánsfjármögnun og alþjóðlegum fjármagnsmörkuðum. Í þeim hluta markaðarins þurfa íslensku bankarnir því að keppa við banka sem bera ekki íslenska bankaskattinn og geta auk þess notið stærðarhagkvæmni og ódýrari fjármögnunar.

Hækkun bankaskattsins skekkir þessa samkeppnisstöðu enn frekar. Ef skatturinn lækkar arðsemi íslensku bankanna og hækkar fjármögnunarkostnað þeirra minnkar svigrúm þeirra enn frekar til að bjóða stærri íslenskum fyrirtækjum sambærileg kjör og erlendir bankar. Fyrirtæki sem hafa val leita út fyrir landsteinana eftir fjármögnun.

Þetta skapar ákveðna þversögn. Þeir viðskiptavinir sem hafa mesta burði til að komast hjá áhrifum bankaskattsins — stór og öflug fyrirtæki með aðgengi að erlendum lánamörkuðum — geta fært viðskipti sín annað. Eftir standa heimili og lítil og meðalstór fyrirtæki sem hafa takmarkaðri möguleika á að sækja sér lánsfé erlendis. Þau eru háðari íslenska bankakerfinu og þar með líklegri til að finna fyrir auknum kostnaði þess.

Hætta sem fylgir sértækum bankasköttum og skertri samkeppnisstöðu íslenska fjármálamarkaðarins felst ekki síst í því að stuðlað er að samþjöppun í atvinnulífinu og verri samkeppnishæfni lítilla og meðalstórra fyrirtækja. En á þessu er enginn skilningur meðal þingmanna stjórnarflokkanna.

Lægri arðsemi og minni hagnaður bankanna koma jafnframt niður á eigendum þeirra. Íslenskir lífeyrissjóðir eru þar á meðal stórir fjárfestar. Óhófleg skattaheimta og skert samkeppnisstaða leiða óhjákvæmilega til lægri arðgreiðslna og/eða lægra verðmats eignarhluta lífeyrissjóðanna (líkt og allra annarra hluthafa, þar á meðal ríkissjóðs) og þar með óbeint hjá sjóðfélögum.

Og það eru engar líkur á því að aukin skattheimta og hærri fjármögnunarkostnaður bankanna lendi ekki á heimilum, með einum eða öðrum hætti, í formi hærri útlánsvaxta, lægri innlánsvaxta eða hærri kostnaðar.

Þó að ríkisstjórnin sæki hlýju í að hægt sé að auka tekjur ríkisins um sex milljarða með hærri bankaskatti er það líkt og að pissa í skóinn sinn. Þér hlýnar í smástund en svo sækir kuldinn að þér. Ríkið á Landsbankann og minni hagnaður hans dregur úr möguleikum bankans til að greiða eiganda sínum arð. Og um leið lækkar verðmæti bankans þegar og ef ríkið ákveður að selja eignarhlut sinn í bankanum að hluta eða öllu leyti. Minni hagnaður fjármálafyrirtækja dregur jafnframt úr öðrum skatttekjum, s.s. fjármagnstekjuskatti. Ef skatturinn hækkar fjármagnskostnað atvinnulífsins, sem allar líkur eru á, hefur það víðtækari áhrif á fjárfestingu og hagvöxt og tekjur ríkisins af flestum skattstofnum. En stjórnmálamenn sem þjást ekki af „skattahræðslu“ eru blindir á heildarmyndina – sjá aðeins einn bita í 1000 bita púsluspili.

Úr 11% í 24% er skattahækkun

Virðisaukaskattur á baðlón, gufuböð og skylda þjónustu á að hækka úr 11% í 24%. Með þessu ætlar ríkissjóður að krækja sér í fjóra milljarða til viðbótar.

Fjármálaráðuneytið kýs að skilgreina lægra VSK-þrepið sem „skattastyrk“. Slík skilgreining sýnir annaðhvort fram á skilningsleysi embættis- og stjórnmálamanna á umhverfi atvinnulífsins eða gefur innsýn í hugmyndafræði sem byggir á því að í raun eigi ríkið tilkall til alls þess sem fyrirtæki og launafólk aflar. Eitt er ljóst. Hækkun virðisaukaskatts í fjárlagafrumvarpinu sýnir að lítill eða enginn skilningur er meðal stjórnarflokkanna á samhengi skattheimtu og samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja.

Íslensk ferðaþjónusta starfar á alþjóðlegum samkeppnismarkaði. Hótel á Íslandi keppir ekki aðeins við hótelið hinum megin við götuna heldur við hótel í Noregi, Svíþjóð, Þýskalandi, Frakklandi, Spáni og Portúgal. Sama gildir um veitingastaði, afþreyingarfyrirtæki, bílaleigur og fyrirtæki sem selja skipulagðar ferðir.

Ferðamaður sem ákveður hvert hann ætlar í frí ber saman áfangastaði. Hann skoðar flugfargjöld, verð á gistingu, veitingum, samgöngum og afþreyingu og metur hvað hann fær fyrir peningana. Hann gerir engan greinarmun á því hvort hátt verð skýrist af launum, hráefniskostnaði, orkukostnaði eða sköttum. Hann sér aðeins lokaverðið.

Þess vegna skiptir virðisaukaskattur miklu fyrir samkeppnisstöðu ferðaþjónustunnar.

Mörg helstu samkeppnislönd Íslands hafa kosið að leggja lægra virðisaukaskattsþrep á mikilvæga þætti ferðaþjónustunnar en gildir almennt í viðkomandi landi. Þýskaland leggur 7% VSK á gistingu þótt almenna þrepið sé 19%. Gisting ber 10% skatt í Frakklandi og á Spáni, 8% í Póllandi, 12% í Noregi og Tékklandi og aðeins 6% í Portúgal. Í mörgum þessara landa njóta einnig veitingar, farþegaflutningar og menningar- og afþreyingarstarfsemi lægri skattlagningar.

Ástæðan er meðal annars eðli samkeppninnar. Hótelherbergi er ekki útflutningsvara sem hægt er að flytja milli landa. Til að kaupa íslenska ferðaþjónustu verður erlendi viðskiptavinurinn að velja Ísland sem áfangastað. Verði Ísland of dýrt getur hann einfaldlega farið annað.

Hærri VSK á Íslandi en hjá samkeppnislöndunum verður því hluti af verðmuninum milli Íslands og annarra áfangastaða.

Fyrirtækin hafa aðeins takmarkaða möguleika til að bregðast við. Þau geta hækkað verð og átt á hættu að missa viðskipti. Eða þau geta tekið skattahækkunina að hluta á sig með lægra verði fyrir skatt, sem þýðir minni framlegð og minni arðsemi. Hvor leiðin sem farin er veikir samkeppnisstöðuna.

Þetta skiptir sérstaklega miklu á Íslandi vegna þess að fyrirtækin glíma þegar við ýmsan kostnað sem fylgir litlum og afskekktum markaði. Skattkerfið getur ekki afmáð þann kostnað en getur auðveldlega aukið hann.

Skatturinn hefur áhrif á verð, eftirspurn, framlegð og fjárfestingargetu fyrirtækjanna og þar með samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar. Ferðamaðurinn greiðir ekki skattinn af tryggð við ríkissjóð Íslands. Ef heildarverðið verður of hátt getur hann valið Noreg, Þýskaland, Frakkland, Spán eða Portúgal í stað Íslands.

Þar liggur grundvallarmunurinn. Íslensk ferðaþjónustufyrirtæki þurfa að keppa við erlend fyrirtæki sem geta selt sambærilega þjónustu með lægri virðisaukaskatti. Þegar íslensk stjórnvöld hækka skattinn eru þau því jafnframt að breyta samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja gagnvart erlendum keppinautum þeirra.

Sé verð þjónustu án VSK 10.000 krónur hækkar skatturinn úr 1.100 í 2.400 krónur. Sé hækkuninni allri velt út í verð hækkar reikningur neytandans úr 11.100 í 12.400 krónur, eða um 11,7%.

Hærri skattur á húsbyggingar

Endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu við byggingu, endurbætur og viðhald íbúðarhúsnæðis verður lækkuð úr 35% í 20%. Endurgreiðslan skerðist um tæp 43% eða um 3,6 milljarða króna í heild.

Fyrir þann sem byggir hús eða endurbætir íbúð er niðurstaðan einfaldlega sú að ríkið heldur eftir stærri hluta skattsins. Fjármálaráðuneytið áætlar að breytingin geti hækkað byggingar- og framkvæmdakostnað um 1% að jafnaði.

Nýr fimm milljarða skattstofn

Í óseðjandi þörf fyrir auknar tekjur ætlar ríkisstjórnin að leggja á nýjan skatt, náttúru- og innviðagjald. Áætlaðar tekjur eru fimm milljarðar króna á ári.

Þetta verður að skoða í samhengi við aðrar álögur á ferðaþjónustuna. Gistináttaskattur hækkar. Innviðagjald hækkar. Virðisaukaskattur á baðlón hækkar. Það er því verið að sækja milljarða til greinarinnar eftir mörgum leiðum samtímis. Samkeppnisstaðan versnar enn frekar.

Úrvinnslugjöldin: allt að 500% hækkun

Síðan eru úrvinnslugjöldin. Úrvinnslugjald er ekki almennur skattstofn ríkissjóðs með sama hætti og tekjuskattur eða virðisaukaskattur. Lögin gera ráð fyrir að tekjur hvers uppgjörsflokks standi undir kostnaði við söfnun, flutning, endurvinnslu og förgun viðkomandi úrgangs.

En fyrir fyrirtæki sem flytur inn vöru og neytandann sem kaupir hana er gjaldið engu að síður lögbundin álagning sem leggst á vöruna. Og hækkanirnar eru í sumum tilfellum gríðarlegar.

Plastumbúðir og heyrúlluplast hækka um 92%. Léttar drifrafhlöður um 40%. Lítil raftæki um 46%. Stór raftæki um 173%. Og úrvinnslugjald á sólarrafhlöður sexfaldast — úr fimm krónum í 30 krónur á kíló. Hækkunin er 500%.

Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er áætlað að úrvinnslugjöld skili 5.653 milljónum króna árið 2027, eða tæplega 5,7 milljörðum.

Samkvæmt lögum um úrvinnslugjald eiga tekjurnar að renna óskiptar til Úrvinnslusjóðs að frádregnu 0,5% umsýslugjaldi ríkissjóðs. Hver uppgjörsflokkur á að vera fjárhagslega sjálfstæður og tekjum flokksins má aðeins verja til að mæta gjöldum hans. Úrvinnslusjóður á árlega að gera fjárhagsáætlun sem byggist á magni vöru sem kemur á markað, magni úrgangs sem safnast og kostnaði við úrvinnslu.

Það er því ekki rétt, miðað við fyrirliggjandi gögn, að halda því fram að hækkun úrvinnslugjaldanna sé leið fyrir ríkissjóð til að skapa sér stóran tekjuafgang. Þvert á móti eru nokkuð sterk rök fyrir mörgum hækkununum.

Pappa- og pappírsumbúðir voru með 484 milljóna króna neikvæða sjóðsstöðu í upphafi árs 2026. Viðarumbúðir voru 96 milljónir í mínus. Plastflokkurinn stefnir að óbreyttu í neikvæða stöðu. Rekstur kælitækjaflokks var neikvæður um 28,7 milljónir árið 2025.

Kostnaður vegna rafhlaðna hefur jafnframt stóraukist. Endurgjald fyrir óflokkaðar rafhlöður hækkaði úr 278 í 375 krónur á kíló og fyrir lithium-rafhlöður úr 329 í 650 krónur — nær tvöföldun.

Og í tilfelli stórra raftækja gerir Úrvinnslusjóður ráð fyrir að endurgjald til þjónustuaðila, sem nú er 22 krónur á kíló, geti orðið um 72 krónur árið 2027 vegna aukinna krafna um flokkun og úrvinnslu.

Óháð því hvort og með hvaða hætti hægt er að færa rök fyrir réttmæti úrvinnslugjaldsins stendur það eftir að fyrirtæki og neytendur þurfa að greiða gjöldin. Og 92%, 173% eða 500% hækkun á lögbundnu gjaldi getur haft áhrif á verð vöru óháð því hvort fjármunirnir enda í almennum ríkissjóði eða sérstökum sjóði til að standa undir kostnaði við förgun og endurvinnslu.

Verðtrygging ríkisins verður verðbólguvaldur

Ef markmið stjórnvalda er að koma verðbólgu niður í 2,5%, sem er verðbólgumarkmið Seðlabankans, hvers vegna ætlar ríkið þá að byggja 5,2% hækkun eigin gjaldskrár inn í hagkerfið? Með sjálfvirkri verðtryggingu er ríkissjóður varinn fyrir afleiðingum verðbólgunnar á sama tíma og skattgreiðandinn þarf að bera þær.

Fjárlagafrumvarpið er sett fram undir merkjum aðhalds. En það er grundvallarmunur á aðhaldi ríkisins og aðhaldi sem ríkið leggur á skattgreiðendur. Þegar ríkið dregur úr eigin starfsemi, lækkar kostnað, forgangsraðar verkefnum eða eykur framleiðni er um raunverulegt útgjaldaaðhald að ræða.

Þegar ríkið hækkar skatt þarf skattgreiðandinn að sýna aðhald. Þegar ríkið hækkar gjöld þarf fjölskyldan eða fyrirtækið að sýna aðhald. Þegar vaxtabætur eru afnumdar þarf skuldsett heimili að sýna aðhald. Þegar barnabætur eru frystar á meðan verðlag hækkar þarf barnafjölskyldan að sýna aðhald.

Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir auknum ríkisútgjöldum en að aðhald verði á fyrirtæki og heimili. Skattar og gjöld eru hækkuð á breiðum grunni.

Ríkið verðtryggir skatttekjur sínar en ekki barnabætur. Vaxtabætur eru afnumdar. Tekjuskattskerfinu er breytt svo ríkissjóður fái 3,1 milljarði meira af launum fólks. Kílómetragjald hækkar um nær 16%. Bankaskatturinn um 75%. Virðisaukaskattur á baðlón fer úr 11% í 24%. Nýr fimm milljarða gjaldstofn verður til og einstök úrvinnslugjöld hækka um tugi, hundruð og allt að 500%.

Niðurstaðan: 34,1 milljarðs króna aukin skattheimta og tekjuöflun samkvæmt útreikningum ríkisins sjálfs. Þegar afnám vaxtabóta og raunskerðing barnabóta eru tekin með verður mælanlegi reikningurinn sem heimili og fyrirtæki eiga að standa undir um 36 milljörðum krónum hærri á komandi ári en á því sem nú er að líða.