Tollar, verðbólga og pólitískur reikningur Trumps

Horfur versna stöðugt og óveruðsskýin hrannast upp. Útlitið er ekki sérlega bjart fyrir Repúblikanaflokksinn í aðdraganda þingkosninga í Bandaríkjunum í haust. Innan flokksins er þegar hafin umræða um hver beri ábyrgðina ef illa fer. Stríðið við Íran og hækkun á verði bensíns og dísils vega þar þungt, en önnur skýring fær sífellt meiri athygli: Tollastefna Donalds Trump forseta og áhrif hennar á verðlag, fyrirtæki og heimili.

Í leiðara National Review [NR] – tímarit bandarískra hægrimanna – er bent á að sigur Trumps í forsetakosningunum 2024 hafi byggst að verulegu leyti á efnahagslegri óánægju kjósenda. Mikil verðbólga á forsetatíð Joe Biden varð til þess að margir Bandaríkjamenn töldu sig hafa haft það betra fjárhagslega á fyrra kjörtímabili Trumps. Kaupmáttur og framfærslukostnaður urðu þannig meðal öflugustu pólitísku vopna Repúblikana.

Þar liggur jafnframt vandinn sem flokkurinn stendur nú frammi fyrir að mati NR. Stjórnvöld geta átt erfitt með að lækka verð með beinum afskiptum, en þau geta tiltölulega auðveldlega gert vörur dýrari. Tollar eru ein leið til þess. Þegar skattur er lagður á innfluttar vörur eða aðföng hækkar kostnaðurinn og að minnsta kosti hluti hans getur lent á innflytjendum, fyrirtækjum og að lokum neytendum.

Rök Trumps fyrir tollunum hafa þó ekki eingöngu snúist um tekjuöflun eða viðskiptahalla. Að baki liggur ákveðin sýn á þróun bandarísks efnahagslífs undanfarna áratugi. Bandaríkin hafi orðið of háð innflutningi, iðnaðarframleiðsla flust úr landi og Bandaríkin sem iðnaðarsamfélag veikst. Vel launuð og tiltölulega örugg störf í verksmiðjum hafi horfið og í staðinn komið ótryggari störf í þjónustu- og verkefnahagkerfinu.

Samkvæmt þessari hugmynd áttu tollarnir að snúa þróuninni við. Með því að gera erlendar vörur dýrari átti að skapa bandarískum framleiðendum forskot og hvetja fyrirtæki til að flytja framleiðslu aftur heim.

Vandinn er að jafnvel þótt þessi kenning reynist rétt að einhverju marki tekur slík umbreyting mörg ár. Fyrirtæki ákveða ekki á nokkrum mánuðum að loka verksmiðju í Asíu eða Evrópu og reisa nýja í Ohio, Michigan eða Texas. Slíkar ákvarðanir krefjast skipulagningar, fjárfestinga, byggingar verksmiðja, ráðningar starfsfólks og uppbyggingar birgðakeðja.

Til þess þarf einnig fyrirsjáanleika.

Þar hefur tollastefna Trumps, að mati gagnrýnenda hans, brugðist sérstaklega. Stefnan hefur verið síbreytileg. Tollar hafa verið boðaðir, hækkaðir, lækkaðir eða þeim frestað og stundum hefur virst sem breytingarnar ráðist jafnvel af samskiptum forsetans við leiðtoga einstakra ríkja.

Slíkt skapar einmitt þá óvissu sem fyrirtæki forðast þegar þau taka ákvarðanir um milljarða fjárfestingar til áratuga. Hvers vegna ætti fyrirtæki að flytja verksmiðju til Bandaríkjanna vegna tollamúrs ef enginn veit hvort múrinn stendur eftir tvö ár – eða jafnvel eftir tvo mánuði?

Samskiptin við Kanada eru gott dæmi. Kanada er eitt mikilvægasta viðskiptaland Bandaríkjanna, auðugt af náttúruauðlindum og nátengt bandarískum framleiðslukeðjum. Tolladeilur við Kanadamenn geta því bitnað á bandarískum fyrirtækjum ekki síður en kanadískum.

Pólitíski vandinn er síðan sá að kostnaðurinn af tollunum kemur fljótt fram en hugsanlegur ávinningur miklu seinna.

Neytandinn sér hærra verð í versluninni núna. Fyrirtækið greiðir meira fyrir innflutt aðföng núna. Útflytjandinn finnur fyrir gagntollum annarra ríkja núna. Ný verksmiðja, sem hugsanlega verður byggð vegna verndarstefnunnar, kemur hins vegar kannski ekki í gagnið fyrr en eftir mörg ár.

Þetta tímalag getur reynst Repúblikönum pólitískt dýrkeypt.

Trump hefur ítrekað haldið því fram að erlendir aðilar beri kostnaðinn af tollunum. Slíkur málflutningur hefur ekki sannfært alla kjósendur þegar þeir sjálfir finna fyrir hækkandi verði. Enn síður hjálpar það forsetanum þegar hann gerir lítið úr áhyggjum almennings af framfærslukostnaði.

Það sem gerir stöðuna sérstaklega erfiða fyrir Repúblikana er að tollarnir snerta mörg þeirra ríkja þar sem harðasta kosningabaráttan fer fram. Ohio, Michigan, Texas, Norður-Karólína og Iowa eru meðal ríkja þar sem fyrirtæki og neytendur finna fyrir dýrari innfluttum aðföngum og þar sem útflytjendur hafa orðið fyrir barðinu á gagntollum annarra ríkja.

Þannig verður tollastefnan tvíeggjað sverð. Hún á að vernda bandarísk störf en getur um leið hækkað kostnað bandarískra framleiðenda. Hún á að efla útflutningsgetu landsins en getur kallað fram gagnaðgerðir sem loka erlendum mörkuðum fyrir bandarískum vörum.

Gagnrýnendur Trumps bæta við þriðja atriðinu: Hvernig stefnan hefur verið innleidd. Stjórnarskrá Bandaríkjanna byggir á þeirri grunnreglu að umfangsmiklar breytingar á opinberri stefnu, ekki síst í tolla- og skattamálum, fari í gegnum þingið. Fulltrúadeildin og öldungadeildin veita framkvæmdarvaldinu aðhald og skapa jafnframt ákveðinn stöðugleika. Trump hefur hins vegar leitast við að beita forsetavaldinu til að móta tollastefnuna án aðkomu þingsins.

Þegar stefna sem hefur víðtæk áhrif á hagkerfið byggist á ákvörðunum eins manns verður hún um leið berskjaldaðri fyrir skyndilegum breytingum og lagalegum ágreiningi.

Þegar efnahagsmálin verða kosningamálið

Gagnrýni sem nú heyrist frá hægri snýr ekki aðeins að tollum heldur að þeirri tilfinningu að Hvíta húsið hafi misst sjónar á því sem skiptir kjósendur mestu máli.

Framfærslukostnaður, bensínverð, dísilverð og óvissa í alþjóðaviðskiptum snerta daglegt líf kjósenda. Á sama tíma hefur Trump varið mikilli athygli í framkvæmdir við Hvíta húsið, viðburði, samskipti við erlenda leiðtoga og deilur við fjölmiðla.

Kjósandi sem stendur við bensíndæluna og horfir á upphæðina hækka hefur takmarkaðan áhuga á glæsilegum ríkiskvöldverði í Washington. Eigandi fyrirtækis sem veit ekki hvað innflutt hráefni kostar eftir þrjá mánuði hefur litla þolinmæði gagnvart síbreytilegum yfirlýsingum um tolla. Og bóndi eða framleiðandi sem missir markað vegna gagntolla hugsar fyrst og fremst um eigin afkomu.

Opinber heimsókn Xi Jinping Kínaforseta er lýsandi fyrir þann vanda sem Repúblikanar glíma við. Á meðan almenningur glímir við hátt verð og afleiðingar viðskiptadeilna leggur Trump mikla áherslu á glæsileika móttökunnar og kvöldverðarins fyrir kínverska leiðtogann. Sú mynd er að festast í hugum kjósenda að Hvíta húsið virðist stundum meira upptekið af umgjörð valdsins en þeim efnahagslega veruleika sem kjósendur búa við. Og þess vegna eiga frambjóðendur Repúblikana víða á brattann að sækja.