Sveiflan til hægri
Síðastliðinn laugardagur – 16. maí – kjördagur – var góður dagur fyrir alla hægrimenn á Íslandi. Haldi forystufólk borgaralegra afla rétt á spilunum geta sveitarstjórnarkosningarnar markað tímamót – orðið straumhvörf í íslenskum stjórnmálum. Fyrir ríkisstjórnarflokkana eru úrslitin hins vegar áfall. Í höfuðborginni var samanlagt fylgi Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins aðeins rétt liðlega 32% á móti rúmlega 51% stjórnarandstöðunnar. Flokkur fólksins þurrkaðist út. Sjálfstæðisflokkurinn er langstærsti stjórnmálaflokkurinn í Reykjavík, undir forystu Hildar Björnsdóttur. Miðflokkurinn fékk góða kosningu en Framsóknarflokkurinn tapaði verulegu fylgi en hélt einum borgarfulltrúa.

Það sem gerir niðurstöðuna enn þyngri er hversu mikið formaður flokksins og forsætisráðherrann lagði undir. Kristrún Frostadóttir tók fullan þátt í kosningabaráttunni, líklega í þeirri trú að vinsældir hennar yrðu vatn á myllu Samfylkingarinnar á höfuðborgarsvæðinu sérstaklega en einnig víða um land. Hún hélt sérstakan blaðamannafund í Kópavogi til að kynna stefnu flokksins í sveitarstjórnum og vílaði ekki fyrir sér að gefa loforð á kostnað ríkissjóðs. Þá réðist hún harðlega að bæjarstjóranum Ásdísi Kristjánsdóttur sem íbúar Kópavogs svöruðu með skýrum hætti.
Hægt er að hlusta á þáttinn á öllum helstu hlaðvarpsveitum meðal annars hér
