Svikin loforð?
Sigurður Kári Kristjánsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður segir að kjósendur Flokks fólksins hljóta að telja að bæði formaður og fyrrverandi varaformaður skuldi þeim útskýringar á því hvers vegna Guðmundir Ingi Kristinsson ákvað að segja skilið við flokkinn. Í pistli á Facebook að varla ætli Guðmundur Ingi að sitja undir því að formaðurinn þykist ekki vita hvað olli úrsögn hans úr flokknum.
Pistill Sigurðar Kára birtist hér í heild sinni (myndir eru T24.is):
Það verður æ líklegra að ástæðan fyrir því að Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi varaformaður Flokks fólksins, sagði sig skyndilega úr flokknum, sé sú að Inga Sæland formaður hafi svikið loforð um að hann tæki aftur sæti í ríkisstjórn að loknu veikindaleyfi.
Formaðurinn hefur sagt að hún viti ekki hvers vegna varaformaður yfirgaf flokkinn sinn og varaformaðurinn hefur neitað að tjá sig.
Aðrir ráðherrar Flokks fólksins segjast koma af fjöllum. Þingmennirnir líka og forsætisráðherra vill ekki rekja tildrög úrsagnarinnar heldur segir þetta innanflokksmál hjá Flokki fólksins.
— — —

Skýringin á brotthlaupi Guðmundar Inga úr Flokki fólksins sýnist mér koma fram á vef stjórnarráðsins, sem segja má að sé heimasíða ríkisstjórnarinnar.
Í færslu frá 9. desember sl. segir að Guðmundur Ingi, þá mennta- og barnamálaráðherra, hafi þann dag farið í tímabundið veikindaleyfi og muni gangast undir aðgerð vegna veikindanna.
Þá segir að gert sé ráð fyrir að aðgerðin tryggi varaformanninum fullan bata til lengri tíma ”og að hann muni snúa aftur til starfa í kjölfarið.”
Eyjólfur Ármannsson muni ”tímabundið” gegna starfi mennta- og barnamálaráðherra í hans stað.
— — —
Tilkynningin á vef stjórnarráðsins er skýr.
Hún staðfestir, án fyrirvara, að tekin hafði verið ákvörðun um að varaformaðurinn myndi snúa aftur til starfa sem ráðherra í ríkisstjórn.
Allir sem til þekkja vita að stjórnarráðið birtir ekki opinberlega tilkynningar af þessu tagi nema á grundvelli ákvarðana sem hafa verið teknar. Þar eru hvorki birtar tilkynningar sem byggja á getgátum eða slúðri.
— — —
Á meðan annað hefur ekki komið fram er ekki hægt að draga aðra ályktun af tilkynningunni en þá að varaformaður Flokks fólksins hafi haft loforð upp á vasann um að hann ætti að taka rakleitt sæti aftur í ríkisstjórn þegar hann væri búinn að ná heilsu.
Slíkt loforð gat enginn gefið honum nema formaðurinn, Inga Sæland.
Eitthvað virðist hins vegar hafa staðið á efndum þess loforðs um endurkomu varaformannsins sem hann taldi sig hafa fengið.
— — —
Varaformaðurinn fyrrverandi snéri aftur til þings fyrir nokkru og hóf þar störf. Honum hefur hins vegar ekki verið hleypt inn í ríkisstjórnina aftur og hefur í kjölfarið sagt sig úr Flokki fólksins.
Slík ákvörðun varaformanns stjórnmálaflokks er stórmál fyrir hann og flokkinn hans.
Ef eitthvað er að marka tilkynningar á vef Stjórnarráðs Íslands virðist blasa við að Inga Sæland lofaði Guðmundi Inga sæti í ríkisstjórn að loknu veikindaleyfi, en sveik það loforð.
Það er stórfrétt, þótt minna hafi verið fjallað um hana í fjölmiðlum en flestir bjuggust við.
Þótt ýmsar aðrar kenningar séu á flugi um ástæður úrsagnar varaformann Flokks fólksins úr eigin flokki, þá er sú lang líklegust að svik Ingu Sæland við varaformann sinn hafi leitt til úrsagnarinnar.
Sé hún rétt hefur Inga Sæland markað sér stöðu sem stjórnmálamaður sem ekki aðeins svíkur eigin kjósendur, t.d. í ESB-málinu, heldur einnig sína nánustu bandamenn og félaga.
— — —
Daginn sem varaformaður Flokks fólksins sagði sig úr eigin flokki leituðu fjölmiðlar eðlilega eftir viðbrögðum frá formanninum.
Í frétt á Vísi 13. apríl sl. var þetta haft eftir Ingu:
“Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki vita hvaða persónulegu trúnaðarbrestir urðu til þess að Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður flokksins og fyrrverandi ráðherra hans, sagði sig úr flokknum.”
Við höfum ekki vanist því hér á Íslandi að ráðherrar og formenn stjórnmálaflokka mæti í viðtöl til fjölmiðla og tali þar augljóslega gegn betri vitund.
Allir sjá að Inga Sæland er ekki að segja satt þegar hún segist ekki vita hvers vegna varaformaðurinn hennar sagði sig úr flokknum.
Auðvitað veit formaður Flokks fólksins, sem öllu stjórnar þar innanhúss og heldur um alla þræði, hvaða trúnaðarbrestir urðu til þess að varaformaðurinn, hennar nánast bandamaður sem staðið hefur með henni í gegnum þykkt og þunnt frá stofnun flokksins, sá engan annan kost en að hnökklast burt.
Slík ákvörðun er óvenjuleg, stór og afdrifarík fyrir stjórnmálamann.
Slíka ákvörðun tekur enginn nema mikið hafi gengið á í aðdragandanum.
Inga Sæland veit fullvel hver sá aðdragandi var.
— — —
Kjósendur Flokks fólksins hljóta að telja að bæði formaður og fyrrverandi varaformaður skuldi þeim útskýringar á því hvað gerðist.
Þau standa líka bæði í skuld við fjölmiðla, ekki síst í ljósi þeirra svara sem Inga Sæland hefur fram að þessu veitt.
Því verður a.m.k. vart trúað að fjölmiðlar muni láta Ingu Sæland komast upp með að veita svör af því tagi sem hún hefur gert fram að þessu.
Og varla ætlar Guðmundur Ingi að sitja undir því að formaðurinn þykist ekki vita hvað olli úrsögn hans úr flokknum.
Hvort sem hið sanna kemur í ljós eða ekki þá er víst að ástandið á Flokki fólksins er ekki burðugt.
Og ekki er mikill bragur á ríkisstjórninni og ríkisstjórnarflokkunum þessa dagana.
