Kerfisbundið niðurrif borgaralegra réttinda í Hong Kong
Hafi einhver efast um eindreginn ásetning kínverska kommúnistaflokksins að virða að vettugi almenn mannréttindi þá hlýtur efinn að hafa horfið eftir að 20 ára fangelsisdómur var kveðinn upp yfir Jimmy Lai, 78 ára útgefanda og stofnanda dagblaðsins Apple Daily. Dómurinn jafngildir lífstíðardómi, eins og fjallað er um í nýjasta þætti Alltaf til hægri.
Jimmy Lai, sem er einn þekktasti baráttumaður mannréttinda í Hong Kong, hefur setið í fangelsi í rúm fimm ár eða frá því hann var handtekinn í árslok 2020 á grundvelli sérstakra þjóðaröryggislaga sem kínverska ógnarstjórnin setti eftir víðtæk mótmæli almennings í Hong Kong.
Dómurinn er birtingarmynd kerfisbundins niðurrifs borgaralegra réttinda í Hong Kong.
Hægt er að hlusta á þáttinn hjá öllum helstum hlaðvarpsveitum meðal annars hér á Spotify.
