Sagði skilið við Viðreisn
Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins og fyrrverandi ráðherra og þingmaður Viðreisnar, sagði skilið við Viðreisn á síðasta ári. Þetta kemur fram í viðtali við Morgunblaðið 21. janúar. Tilefni viðtalsins er framboð Þorsteins í embætti formanns Samtaka iðnaðarins.
„Ég hætti í pólitík árið 2020 og tók þá ákvörðun á síðasta ári að segja skilið við Viðreisn. Ég var mjög ósáttur við ríkisstjórnarsamstarfið við Flokk fólksins sem er popúlískur lýðskrumsflokkur og besta dæmið um óábyrgt stjórnmálaafl sem mun reynast ríkiskassanum mjög dýrt.“
Sem dæmi bendir Þorsteinn á löggildingu sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra sem hann segir að sé óútfylltur tékki á sveitarfélög. Þar með tekur hann undir varnaðarorð stjórnarandstöðunnar þegar málið var í þinglegri meðferð.
Í færslu á Facebook-síðu sinni segir Þorsteinn að krísur séu „kjörin tækifæri til breytinga og það er mikilvægt að við nýtum núverandi áskoranir á alþjóðavettvangi til umbóta hér heima“. Hann heldur því fram að mikil tækifæri séu til umbóta:
„Við búum við óstöðugt rekstrarumhverfi. Háa verðbólgu og vexti, og tíðar og lítt fyrirsjáanlegar breytingar á skattkerfinu. Við eyðum árum og áratugum í undirbúning raforkuöflunar og opinberra framkvæmda sem þvælast í tímafrekum skipulagsferlum og endalausum kærumálum. Við mætum íþyngjandi gullhúðun evrópsks regluverks og ófyrirsjáanleika og geðþótta eftirlitsstofnana í framfylgni þess.
Þetta þarf ekki að vera svona flókið.“
Þessi orð Þorsteins verða seint talin mikil stuðningsyfirlýsing við efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar eða einbeittan ásetning Viðreisnar að tryggja aðild Íslands að Evrópusambandinu.
