Hugsaðu sjálfstætt: Konan sem ögraði rétttrúnaði fjölmiðla

Bari Weiss er án nokkurs vafa ein áhrifamesta fjölmiðlakona Bandaríkjanna. Hún hefur skapað sér áhrifastöðu í bandarísku þjóðlífi með baráttu gegn pólitískri rétthugsun og „wok-isma“, og skýrri hugmyndafræði um grunngildi blaðamennsku: sanngirni, hlutlægni og réttar upplýsingar. 

Bari hefur byggt upp eigin fjölmiðil – The Free Press – og sett ný viðmið í fjölmiðlun. Miðillinn byggir á hugmyndum um heiðarleika, sjálfstæði og óttalausa blaðamennsku, og hefur vaxið hratt með yfir 1,5 milljón áskrifenda. 

The Free Press hefur laðað að sér fjölbreyttan hóp blaðamanna og rithöfunda og hefur verið vettvangur fyrir opna umræðu um umdeild málefni. Allt undir slagorðinu Think for yourself

Undir lok síðasta árs tók Bari við sem yfirmaður fréttadeildar CBS og hefur látið hendur standa fram úr ermum. 

Margir hafa bent á að Bari sé fulltrúi nýrrar kynslóðar fjölmiðlafólks sem leggur áherslu á sjálfstæði, fjölbreytileika og opna umræðu. Hún hefur staðið vörð um grunngildi blaðamennsku og barist gegn hugmyndafræðilegri einsleitni, bæði í fjölmiðlum og samfélaginu. Og ekki þarf að deila um áhrif hennar á samfélag líðandi stundar.

Hægt er að hlusta á umfjöllun um Bari Weiss og The Free Press hér.

Þrír magnaðir hlaðvarpsþættir á vegum Free Press:

Honestly

Conversations with Coleman

Breaking History