„Enginn treystir lengur hefðbundnum fjölmiðlum.“
Það eru nýir tímar hjá fréttastofu CBS. Aðalfréttatími sjónvarpsstöðvarinnar – „CBS Evening News“ – hefur fengið nýtt útlit og nýr fréttaþulur hefur tekið völdin. Tony Dokoupil boðar ný vinnubrögð.
Fréttadeild CBS er nú undir stjórn Bari Weiss, sem hefur á síðustu árum orðið einn áhrifamesti blaðamaður Bandaríkjanna. Hún er stofnandi fréttamiðilsins The Free Press og hefur barist gegn rétttrúnaði og fyrir heiðarlegri og sanngjarnri fréttamennsku.
Og Bari hefur tekið til hendinni á fréttastofu CBS frá því hún tók við sem yfirmaður í október síðastliðnum: Nýtt útlit, nýr fréttaþulur og nýjar áherslur sem endurspegla þá sannfæringu sem hún hefur á hlutverki fjölmiðla.
Tony Dokoupil hefur sýnt sjálfstæða hugsun í verki sem fréttamaður hjá CBS síðustu tíu ár. Í tveggja mínútna myndbandi sem CBS birti í síðustu viku lofar Dokoupil nýrri nálgun á fréttir sem byggir á hreinskilinni játningu:
„Enginn treystir lengur hefðbundnum fjölmiðlum.“
Hann segir ástæðurnar augljósar. Í of mörgum fréttum fari aðalatriðin fram hjá fjölmiðlum. Þeir hafi tekið mark á stjórnarmiðum baráttufólks en ekki hins almenna Bandaríkjamanns. Fjölmiðlar leggi of mikið upp úr greiningum og áliti fræðimanna og elítunnar í stað sjónarmiða almennings:
„Og ég veit þetta því ég hef verið þið. Mér hefur liðið svona líka. Mér hefur fundist það sem ég sá og heyrði í fréttunum ekki endurspegla það sem ég sá og heyrði í mínu eigin lífi og að brýnustu spurningunum væri einfaldlega ekki verið að spyrja.“
Í skilaboðum sínum til áhorfenda í síðustu viku skýrði Dokoupil afstöðu sína:
„Ég elska að tala við fólk um hvað virkar í þessu landi, hvað ekki, og ekki aðeins hvað ætti að breytast heldur líka þær góðu hugmyndir sem ættu aldrei að breytast. Ég held að það að segja sannleikann sé ein þeirra.“
