Hægri menn standa á krossgötum

Hægri menn geta ekki einblínt á ofstæki vinstri manna en látið pólitíska rétthugsun og yfirgang svokallaðra hægri manna óátalin. Barátta fyrir frelsi – málfrelsi – er barátta fyrir frelsi allra ekki aðeins þeirra sem eru þóknanlegir.

Það er hræsni að verja þá sem klæðast búningi hægri manna en boða rétttrúnað, þöggun, ýta undir fordóma og sækja vítamín í samsæriskenningar.

Tucker Carlson, Candace Owens og Nick Fuentes og fleiri álitsgjafar hafa dregist æ lengra út á jaðarinn með samsæriskenningum, gyðingahatri, árásum á lýðræðisleg gildi og daður við einræðisherra. Þau eru upptekin við að gagnrýna hægri menn en takast á við vinstri sinnaða stjórnmálamenn. 

Hægri menn í Bandaríkjunum standa á krossgötum: Taki þeir sér ekki varðstöðu með grónum gildum frelsis og hugsjóna þeirra sem á undan komu, eins Lincolns og Reagans, verða þeir fórnarlömb þeirra sem nærast af tortryggni og samsæriskenningum. Árangur þeirra í kosningum verður þá enn lakari en 4. nóvember síðastliðinn þegar Demókratar völtuðu yfir frambjóðendur Repúblikana í ríkisstjórakosningum í Virginíu og New Jersey og kosningu borgarstjóra New York.

Hér er hægt að hlusta á hlaðvarpsþáttinn.