72% segja Daða Má standa sig illa
Tæplega 72% þátttakenda í markaðskönnun Viðskiptablaðsins telja að Daði Már Kristófersson hafi staðið sig illa í embætti fjármálaráðherra. Aðeins 7% eru á því að hann hafi staðið sig mjög vel eða frekar vel og 21% segja Daða Má hvorki hafa staðið sig vel eða illa.
Viðskiptablaðið greinir frá niðurstöðum markaðskönnunarinnar í nýjasta tölublaðinu sem kom út 11. mars. Þar kemur einnig fram að 90% markaðsaðila eigi von á að Seðlabankinn haldi stýrivöxtum á fundi peningastefnunefndar í komandi viku. Um 54% þátttakenda ráðleggja óbreytta vexti en athygli vekur að 23% eru á því að rétt sé að hækka stýrivextina.
Nær 90% eru á því að ríkisfjármálin hafi stuðlað að aukinni verðbólgu og því ætti mat markaðsaðila á frammistöðu Daða Más í fjármálaráðuneytinu ekki að koma á óvart.
