Klippt og skorið 18. júní

Ný niðurlæging í aðsigi

Styrmir Gunnarsson telur að ný niðurlægin íslenskrar utanríkisþjónustu sé í aðsigi. Í pistli á Evrópuvaktinni segir Styrmir að tilraunin að fá Ísland kjörið í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi verið mesta niðurlæging sem utanríkisþjónusta Íslands hefur orðið fyrir. Orðrétt segir Styrmir:"Þar fór saman alvarlegur dómgreindarskortur, hroki og að því er virtist voru bæði þáverandi...

Meira »
Klippt og skorið 16. júní

Hvaða háskólamenn eru óháðir?

Fjölmiðlar eru duglegir við að leita til háskólamanna eftir áliti þeirra á ýmsum málum. Slíkt er eðlilegt og yfirleitt gott. En vandinn er sá að margir háskólamanna eru ekki eins óháðir og þeir vilja vera láta. Sumir afla stóran hluta tekna sinna með ráðgjöf og vinnu fyrir framkvæmdavaldið - sitjandi ríkisstjórn. Þeir telja það hins vegar eðlilegt að koma fram í fjölmiðlum sem óháðir sérfræðingar. Vegna þessa lagði...

Meira »
Klippt og skorið 15. júní

Hin nýja valdastétt

 Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, óskaði eftir utandagskrárumræðu um störf skilanefnda bankanna 9. júní síðastliðinn. Ég tók þátt í umræðunni og sagði meðal annars:"Við skulum bara tala hreint út. Skilanefndir hinna föllnu banka og sparisjóða eru hin nýja valdastétt á Íslandi. Það er ólíðandi að slík valdastétt sé og starfi með þeim hætti sem hún gerir. Hún er öllum...

Meira »
Klippt og skorið 9. júní

Þorvaldur sár vegna leikrits

Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði, er greinilega sár vegna þess að hann var ekki ráðinn seðlabankastjóri á síðasta ári. Hann telur að ráðning Más Guðmundssonar í stöðuna hafi verið leikrití leikstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Ég get varla verið ósammála þessu.Pressan hefur það eftir Þorvaldi að hann hafi frá upphafi litið svo á að það hafi verið ákbeðið löngu fyrirfram hver yrði skipaður...

Meira »
Klippt og skorið 8. júní

Vandræði Jóhönnu

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra grefur sér æ dýpri gröf. Launamál Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra er einhver sérkennilegasti farsti sem ég hef orðið vitni að. Jóhanna kannast ekki við neitt og vísar allri ábyrgð á 400 þúsund króna launahækkun seðlabankastjóra frá sér. Í makalausu Kastljósviðtali í gærkvöldi vildi hún ekki gangast við því að tilmæli hefðu komið frá...

Meira »
Götuhornið 12. október 2008

Fyrirlitning Egils

Egill Helgason gekk óvenju hart fram gagnvart Jóni Ásgeiri Jóhannessyn stjórnarformanni Baugs í Silfri Egils. Áhorfendur komust ekki hjá því að skynja hversu reiður Egill var gagnvart íslensku útrásarvíkingunum, sem hann telur að hafi valdið saklausu fólki gríðarlegum skaða með dómgreindarleysi og græðgi. En það var ekki bara að Egill gengi hart fram heldur sýndi hann fyrirlitningu sína á viðmælandanum og öllu því sem hann stendur fyrir. Varla eru dæmi um slík í íslensku sjónvarpi.