Klippt og skoriđ 18. júní

Ný niđurlćging í ađsigi

Styrmir Gunnarsson telur að ný niðurlægin íslenskrar utanríkisþjónustu sé í aðsigi. Í pistli á Evrópuvaktinni segir Styrmir að tilraunin að fá Ísland kjörið í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi verið mesta niðurlæging sem utanríkisþjónusta Íslands hefur orðið fyrir. Orðrétt segir Styrmir:"Þar fór saman alvarlegur dómgreindarskortur, hroki og að því er virtist voru bæði þáverandi...

Meira »
Klippt og skoriđ 16. júní

Hvađa háskólamenn eru óháđir?

Fjölmiðlar eru duglegir við að leita til háskólamanna eftir áliti þeirra á ýmsum málum. Slíkt er eðlilegt og yfirleitt gott. En vandinn er sá að margir háskólamanna eru ekki eins óháðir og þeir vilja vera láta. Sumir afla stóran hluta tekna sinna með ráðgjöf og vinnu fyrir framkvæmdavaldið - sitjandi ríkisstjórn. Þeir telja það hins vegar eðlilegt að koma fram í fjölmiðlum sem óháðir sérfræðingar. Vegna þessa lagði...

Meira »
Klippt og skoriđ 15. júní

Hin nýja valdastétt

 Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, óskaði eftir utandagskrárumræðu um störf skilanefnda bankanna 9. júní síðastliðinn. Ég tók þátt í umræðunni og sagði meðal annars:"Við skulum bara tala hreint út. Skilanefndir hinna föllnu banka og sparisjóða eru hin nýja valdastétt á Íslandi. Það er ólíðandi að slík valdastétt sé og starfi með þeim hætti sem hún gerir. Hún er öllum...

Meira »
Klippt og skoriđ 9. júní

Ţorvaldur sár vegna leikrits

Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði, er greinilega sár vegna þess að hann var ekki ráðinn seðlabankastjóri á síðasta ári. Hann telur að ráðning Más Guðmundssonar í stöðuna hafi verið leikrití leikstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Ég get varla verið ósammála þessu.Pressan hefur það eftir Þorvaldi að hann hafi frá upphafi litið svo á að það hafi verið ákbeðið löngu fyrirfram hver yrði skipaður...

Meira »
Klippt og skoriđ 8. júní

Vandrćđi Jóhönnu

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra grefur sér æ dýpri gröf. Launamál Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra er einhver sérkennilegasti farsti sem ég hef orðið vitni að. Jóhanna kannast ekki við neitt og vísar allri ábyrgð á 400 þúsund króna launahækkun seðlabankastjóra frá sér. Í makalausu Kastljósviðtali í gærkvöldi vildi hún ekki gangast við því að tilmæli hefðu komið frá...

Meira »
Frétt 12. október 2008

Vill allt ađ 240 milljarđa afslátt af skuldum Baugs

Uppfærsla: Jón Ásgeir hefur nú upplýst að skuldir Baugs Group séu um einn milljarður punda við íslenska banka. (Sjá umfjöllun um Viðskiptaveldi). Þetta þýðir að skuldir eru tæplega 190 milljarðar. Sé miðað við 20-30% greiðslu, líkt og Philip Green er að bjóða, mundi tap bankanna nema um 130-152 milljörðum króna.

 

Jón Ásgeir Jóhannesson mótmælti ekki staðhæfingu Egils Helgasonar um að Baugur skuldi íslenskum bönkum um 300 milljarða króna, en sá fyrrnefndi var gestur í Silfri Egils. Egill gekk nokkuð hart á Jón Ásgeir vegna þessa en hann vék sér undan og sagði það ekki hægt að svara þessu enda ekki ljóst hvert gengi krónunnar sé í raun. 

Komið hefur fram í fréttum að breski athafnamaðurinn Philip Green hefur áhuga á að kaup allar skuldir Baugs í íslensku bankana og hefur hann átt viðræður við Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra ásamt Baugsmönnum um þennan möguleika. Samkvæmt heimildum T24 hefur Green boðist til að kaupa skuldirnar á 20-30%  af stöðu þeirra. Þetta þýðir í raun að Green er reiðubúinn til að greiða 60-90 milljarða fyrir skuldirnar. Tapið verður þá 210-240 milljarðar króna verði gengið að tilboðinu.

Í viðtalinu við Egil fullyrti Jón Ásgeir að hann fengi ekkert út úr því persónulega ef gengið yrði að tilboði Green. Jón Ásgeir neitaði því einnig að hafa komið eignum undan á erlenda leynireikninga, líkt og Egill gaf í skyn. 

Silfur Egils

Sjá frétt Financial Times um aðkomu Green