Styrmir Gunnarsson telur að ný niðurlægin íslenskrar utanríkisþjónustu sé í aðsigi. Í pistli á Evrópuvaktinni segir Styrmir að tilraunin að fá Ísland kjörið í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi verið mesta niðurlæging sem utanríkisþjónusta Íslands hefur orðið fyrir. Orðrétt segir Styrmir:"Þar fór saman alvarlegur dómgreindarskortur, hroki og að því er virtist voru bæði þáverandi...
Meira »Fjölmiðlar eru duglegir við að leita til háskólamanna eftir áliti þeirra á ýmsum málum. Slíkt er eðlilegt og yfirleitt gott. En vandinn er sá að margir háskólamanna eru ekki eins óháðir og þeir vilja vera láta. Sumir afla stóran hluta tekna sinna með ráðgjöf og vinnu fyrir framkvæmdavaldið - sitjandi ríkisstjórn. Þeir telja það hins vegar eðlilegt að koma fram í fjölmiðlum sem óháðir sérfræðingar. Vegna þessa lagði...
Meira »Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, óskaði eftir utandagskrárumræðu um störf skilanefnda bankanna 9. júní síðastliðinn. Ég tók þátt í umræðunni og sagði meðal annars:"Við skulum bara tala hreint út. Skilanefndir hinna föllnu banka og sparisjóða eru hin nýja valdastétt á Íslandi. Það er ólíðandi að slík valdastétt sé og starfi með þeim hætti sem hún gerir. Hún er öllum...
Meira »Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði, er greinilega sár vegna þess að hann var ekki ráðinn seðlabankastjóri á síðasta ári. Hann telur að ráðning Más Guðmundssonar í stöðuna hafi verið leikrití leikstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Ég get varla verið ósammála þessu.Pressan hefur það eftir Þorvaldi að hann hafi frá upphafi litið svo á að það hafi verið ákbeðið löngu fyrirfram hver yrði skipaður...
Meira »Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra grefur sér æ dýpri gröf. Launamál Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra er einhver sérkennilegasti farsti sem ég hef orðið vitni að. Jóhanna kannast ekki við neitt og vísar allri ábyrgð á 400 þúsund króna launahækkun seðlabankastjóra frá sér. Í makalausu Kastljósviðtali í gærkvöldi vildi hún ekki gangast við því að tilmæli hefðu komið frá...
Meira »Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra heldur því fram að 17. júní sé sérstakur “heilladagur” fyrir Íslendinga. Ekki vegna þess að þá öðlaðist þessi fámenna þjóð fullt sjálfstæði, heldur vegna þess að leiðtogaráð Evrópusambandsins ákvað að hefja viðræður við Ísland um aðild að sambandinu. Mikill meirihluti Íslendinga er á móti aðild og ljóst er að meirihluti þingmanna er einnig mótfallinn aðild, þó nokkrir þeirra hafi samþykkt að óska eftir viðræðum eftir pólitísk hrossakaup milli Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Það er hrein ósvífni af hálfu utanríkisráðherra að kalla það “heilladag” þegar samþykkt er að ganga gegn meirihluta þjóðarinnar. En það er eftir öðru sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur tekur sér fyrir hendur, í stað þess að ráðast í aðgerðir til að leysa...
Við endurreisn íslensks efnahagslífs verðum við að forðast að færa ríkinu og eftirlitsstofnunum þess of mikil völd. Við megum ekki búa til kerfi eftirlitsiðnaðar þar sem embættismönnum eru færð völd til að drottna yfir athöfnum einstaklinga og fyrirtækja. Við þurfum einfaldar, skýrar og réttlátar leikreglur sem allir þurfa að fara eftir. Þeir sem brjóta reglurnar eiga að sæta ábyrgð og þá á að sækja til sakar. Ég hef oftar en einu sinni...
Lesa áfram »Ríkisstjórninni virðist um megn að koma fram með heilstæða löggjöf um fjármálamarkaðinn þar sem tekist er á við þá galla í lögum sem komið hafa í ljós og leiddu til hruns íslenska fjármálakerfisins í október 2008. Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki en forðast í öllu að taka á því sem skiptir mestu. Kannski er það ekki undarlegt að ekki skuli...
Lesa áfram »
